Góðan & blessaðan daginn:-)
Það er ekki laust við það að tíminn fljúgi áfram þegar það er gaman:-)
Það er ekki laust við það að tíminn fljúgi áfram þegar það er gaman:-)
Ég er búin að vera á leiðinni að setja inn einhverja visku hér en það hefur ekki tekist...fyrr en nú:-)
Erum búin eiga alveg yndislegan sunnudag hér í kotinu. Bara dásamlegt að fá svona "ofsa"veður og neyðast til þess að vera inni;-)
Á dagskránni er auðvitað að setja í nokkrar vélar en svo stefni ég í bílskúrinn til að dúlla mér við að pússa og mála mublur & Things :-) En áður en ég get deilt því með ykkur sem þar fer fram að þá ætla ég að skella hér inn nokkrum myndum af "SunnudagsSteikinni";-)
Við erum að selja alveg dásamlegar vörur frá "Philip Vahé" í Púkó & Smart og erum orðin húkt:-)
Það sem við notuðum í dag voru eftirfarandi tegundir:
Salt m/parmesan & basil
Tómat & Artichoke pestó
Fíkju & Basilico pestó
SunnudagsSalat:
Slatti af salatblöndu & Spínati
Avocadó
Rauðlaukur
Hráskinka
Fíkju og Basilico Pesto
Sumardrykkur:
Slatti af frosnum ávöxtum - notaði Exotíska blöndu í dag:)
Slatti Grísk jógúrt
Slatti Appelsínusafi
Dass af vanilludropum
Ostabrauð í ofni:
Snittubrauð skorið í tvennt
Ólívuolía
Salt m/parmesan & basil
Mosarellaostur í rúllu
Skárum niður tómata og rauða papríku og nokkur Basilikulauf í tilefni dagsins:-)
Allt sett á diski og Voila:-)
Nú er Grænmetisbaka að hitna í ofninum og þegar henni hefur verið skolað niður með íslensku vatni úr krananum......bílskúrinn, frúin og draslið:-)
Knús út í tilveruna
Frú Púkó:-)