29 December 2012

Svei mér þá..1árs brúðkaupsafmæli:-)

Góðan daginn Heimur og takk fyrir mig:-D

Það er svo dásamlegt að vakna eftir dásamlegt partý með dásamlegu fólki á dásamlegum stað og uppgötva að á þessum dýrðar degi eigi maður 1 árs Brúðkaupsafmæli:-D 
"Pappír" er það heillin og okkur til heiðurs ætlum við að hafa "pappír" sem þema dagsins og gera honum góð skil. Stefnan er tekin á miðborg Reykjavíkur þar sem planið er að innbyrða Sushi "með svörtum pappír utanum" eins og sonurinn segir, fara svo í bókabúðaráp og skoða bækur og blöð úr pappír, kaupa eitthvað fallegt úr pappír fyrir heimilið og enda svo daginn á því að taka ögn til í pappírum heimilisins, borða eitthvað gott saman af pappadiskum, skrifa markmiðin 2013 á pappir og að endingu kúra&kela eitthvað fram undir miðnætti;-)
 Ekki hægt að biðja um dásamlegri tilveru í dag:-)

Hér eru örfáar & ársgamlar glefsur úr HamingjuBúbblunni okkar þann 29.desember 2012 sl.


Þetta var okkar uppskrift af okkar degi: 
1 stk Hlaðbæjarfjölskylda
1 stk. Galtóm Lauganeskirkja
1 par Amma&Afi, 
1 par af dásemdar prestarhjónunum Jónu Hrönn & Bjarna, 
1 stk. dýrðarkórinn Schola Cantorum "the original version"
1 stk. dýrindis organistinn Gunnar Gunnarson
1 stk. ValgeirMagnússon sem sá um að festa þetta allt á filmu
1 stk. jólatré
6 stk. kertaljós
1 stk vetrarhríð með tilheyrandi ófærð
Dass af ást og gleði & smakkað til for years to come:-) 



Svo hentumst við til Gassa í nokkrar mínútur og 
hann fangaði nokkur fögur augnablik þessi elska:) 


 Dúllurassarnir með Ömmu Dísu & Afa Tóta:-) 

Aaahhhhh...þetta er náttúrulega bara dásamlegt þetta líf sem við lifum!
Over&Out...with a silly smile on her happy face:-) 
Frú Púkó

27 December 2012

Kalkaður heilagur Georg & Gleði

Gleðileg jól elska og ég vona að jólin hafi verið dýrðleg & að nýárið eigi eftir að "rock your world":-) 


Þessi frú er búin að hafa það algerlega dásamlegt í hreiðrinum með ungum og elskhuga og til að toppa það að þá var allri familíunni skellt í "matching pyjamas" og nú svífum við á milli vistarvera í dásamlega skrautlegum röndóttum & sérmerktum náttfötum:) Og ekki annað hægt en brosa þegar maður rekst á fjölskyldumeðlim á leið úr eldhúsinu með laufabrauðsmylsnu í hárinu og troðfullan munn af Sörum:-) Við erum það sem flokkast undir "totally adorable" þessa daganna:-) 



Og að öðru:-)  Nú ætla ég loksins að láta verða af því sem nokkrar af vinkonum mínum eru búnar að biðja um undanfarir og það er að birta mynd af mínum ástkæru & endurfæddu Georg Jensen óróum;-) 
Eg er nefnilega, eins og svo margir aðrir, stoltur eigandi jólaóranna hans Georgs "frænda"sem hann "gerði" á árunum frá 1999 - 2004! Fékk þá alltaf í jólagjöf frá minni elskulegu fyrrverandi tengdó og fannst ég fyrst vera orðin fullorðin þegar ég eignaðist þann fyrsta;-) 
Ég var með þessar elskur hangandi í eldhúsgardínunni eins og lög gera ráð fyrir í nokkur ár....þangað til einn daginn að ég gat bara ekki meir....er bara einhvern ekki "the golden girl" þegar kemur að jólunum:-) Ár eftir ár tók ég þá samt upp og velti þeim á milli handanna áður en ég pakkaði þeim aftur - reyndi meira að segja að lána þá en ekkert dugði til, ekkert gerðist....þangað til um síðustu jól;-) 
Sem fyrr, var ég búin að taka þessar elskur upp úr fínu rauðu kössunum sínum og velkjast með þá á milli handanna, skimandi í kringum mig eftir hugsanlegum stað  - fyrstu jólin í nýja draumahúsinu og ekkert annað í boði en að þeir fengju að vera með í "partýinu" - en eitthvað lét staðurinn á sér standa!  Ég var um það bil að fara að pakka þeim aftur niður þegar mér verður litið á borstofuborðið! Þar standa ný-kalkaðir dýrgripir í haugum (frúin búin að vera með kalkæði síðan sumarið 2010 og á bara eftir að kalka kallinn...) og við hliðina á þeim stendur opin fata með kalklit sem ber hit fagra nafn "Calche" og er eitt afbrigðið af hinum margrómaða hvíta lit....og þar með voru örlög þeirra ráðin! Ekkert annað í stöðunni en láta vaða....þannig að ég var ekkert að tvínóna neitt við þetta meir...sá órói sem í hendi var bar ártalið 2001 og fékk hann bara að vaða beinustu leið ofan í fötuna og dúsa þar í augnablik - síðan var honum umsvifalaust kippt upp úr og hann hengdur til þerris í ljósakrónunni...þá gat ég loks farið að  að sofa:-) Morgunin eftir stökk ég spennt fram úr (gerist mjööög sjaldan) og skottaðist beinustu leið inn í stofu til að líta á Georg gamla og viti menn....þarna hékk þessi líka fagra, matta & hvíta gersemi og beið þess eins að fá nýjan borða til að geta hafið sig til flugs yfir í eldhúsgluggann...og þar hangir hann núna þessi dásemd með bræðrum sínum 1999, 2000, 2002, 2003 & 2004:-D


....og ef þeir fara að kvarta og vilja fara aftur í gamla "goldfingerinn" að þá skelli ég þeim bara í uppþvottavélina og málið er steindautt;-D


Læt svo fylgja hér nokkrar glefsur frá Jóladúlleríi heimilisins 2012:-) 

Jólaknús á línuna & gleði í hjarta:-D
Frú Púkó

























25 November 2012

Bjór&Ostar:-)

Aaahhhh elska fólk sem nennir að elda ofan í  mig og ekki versnar það þegar maður fær nýjan öllara með hverjum rétti:-D Okkur hjónakornunum var boðið í dýrindis Bjóra&Osta boð á föstudaginn og ég held að leyfi bara myndunum að tala sínu máli....farin að slefa svo mikið af því að setja þetta saman að ég hræði bara tölvuhróið mitt sem er með eindæmum rakafælið:) 

Voila e buon appetito:-D

Kirsuberjabjór í fordrykk og svo sameinast  yfir pottunum í eldhúsinu:-) 

Heimalagaður RICOTTA:-)

"Pasta fátæka mannsins" er eitthvaðsem ég gæti auðveldlega borðað í öll mál:) Og þessi ostabakki frá Maestro Eirný hjá BÚRINU framkallaði miklar stunur og stuð:-) Svo í blálokin kom dásemdar Frönsk súkkulaðikaka sem húsbóndin galdraði fram og með með honum dásemdar kaffibjór....og frúin sat lömuð af unaði og gleymdi að mynda mómentið...á það bara í staðin ein með sjálfri mér;-) 

Á dagskrá dagsins er að taka hjónaherbergið í smá treat...færa fötin af gólfinu og inn í skápa, skipta á rúmi, ryksuga og þurrka af og byrja svo smá æfing fyrir Frostrósirnar sem í vændum eru:-) 
Eigið dásamlegan sunnudag elskurnar:-) 

Knús af kantinum
Frú Púkó


24 November 2012

Jóladúllerí númeró uno frá frúnni:-)

Hallelúja, loksins er frúin orðin lögleg og getur farið að puða jólaskrautinu út og suður um húsið og lóðina....þvílíkur dásemdartími sem er um það bil að ganga í garð:-D Og nú hefst það...jólabloggerí 2012...;-D Stefni á nokkur fyrir jól & er búin að panta auka 6 tíma í sólarhringin frá Giljagaur...er nokkuð vongóð um að hann verði við þeirri bón minni...sem fyrr;-D

En semsagt, ég heiti Frú Púkó og er LUKTARFÍKILL..."Hæ Frú Púkó"bergmálaði um salinn:-)
Það fer engin lukt fram hjá frúnni þegar rúntað er milli vinnustaða og ef umferðarstofa vissi af þessu myndu þau eflaust frekar vilja hafa frúnna smessandi undir stýri...get skrifað póst á ferð án þess að missa einbeitinguna en ef ég sé LUKT að þá er voðin vís..:-) Og hún á þær nokkrar þessi dama...úti í garði hanga þær & standa vítt og breytt og innandyra er ekki sú vistarvera sem ekki hefur að geyma einhverskonar lukt eða ljóstýrugjafa:-)

Og því er ekki úr vegi að henda hér inn mynd af einni sem búið er að jóla upp:)

Það sem til þarf er eftirfarandi:
LUKT í viðeigandi stærð....I like them BIG:)
Dáin haustjurt úr garðinum...Erika eða Mosabrúskurinn fagri:)
Lítin "JólaSýprus":)
Könglakrútt & Skraut...hér er notast við nýjasta "æði" frúarinna...Viðarstörnur:-)
Kerti að eigin vali...í þessari tilteknu eru "Hreindýrðin" og "Heims um ból frá MyStuff....lov´emm:)



Og VOILA...málið er dautt og ein luktin skreytt:-) 


Njótið helgarinnar ljósin mín og nú lofar mamma að vera dugleg að setja inn eitthvað Púkó & Smart á næstu vikum:-) 

Love, Peace & Hairgreace
Frú Púkó

15 September 2012

Mál til komið að mála:-)

Jú það var komin tími á nokkra hluti og þá er lítið annað að gera en bretta upp ermarnar og setja heimilið á annan endan rétt á meðan;-)


Þar er ekki laust við það að bílskúrinn sé fullur af dúllerí sem þarfnast smá athyglu frá Frúnni! Og þar á meðal þessi gamli og algerlega dásamlegi sófabekkur sem ég fann á netinu. Ég er búin að klóra mér þónokkuð í hausnum yfir því hvaða litur á að fara á hann! Var að hugsa hvítur fyrst....en ákvað að vera flippskúnkur og skellti á hann fádæma fögrum lit sem heitir "Lys Aubergine"frá Jötun:-) Fyrst var pússað og síðan málað....ekkert svo flókið:-D


Pússað í myrkri;-) 


Komin í "fyrirsætustörf" í Púkó & Smart ný málaður, strokin og fínn:-) 




Svo fékk ég ógurlega þörf fyrir að mála þennan gamla grip líka og þá var auðvitað ekki eftir neinu að bíða;-)  Ég var búin að pússa hann áður en búðin opnaði þannig að ég dreif bara í því að mála hann og fyrir valinu varð litur sem heitir "Vanilje" og er frá Jötun. Og útkoman er sko ekki af verri endanum að eigin mati að minnsta kosti:-) 


Alveg ótrúlegt hvað nokkur handtök og smá málning geta gert:-) 

Yfir og út í bili....og vonandi ekki eins lengi og síðast;-) 

Love, peace & hairgrease:-) 


01 August 2012

Þetta þarf ekki að vera mikið flókið þetta líf:-)

Nú erum við komin í Sæluna okkar í nokkra daga og eina stellingin sem kemur til greina er sú er nefnist   "Hvíldarstelling gamla mannsins"-  þær sem kenndar eru við trúboða og aðra dýrðlínga munu týnast inn hver af annari eftir því sem dagarnir líða;-)

Doppóttu fánarnir fínu eru komnir upp í garðinum og ekkert agalega súrt að sitja á nýja pallinum og fá sér bita & njóta:-D



En það er auðvitað ekki hægt að liggja endalaust á bakinu í sólinni án þess að finna upp á einhverju að gera þannig að nú er frúin búin að hripa niður verkefnin og eru þau eftirfarandi:

 Hengja upp dýrindis vegglímiða sem ég keypti í hinni á ávallt yndislegu SIRKU á Akureyri:)
Mála gamla skápinn þeirra Steinunnar og Heru gömlu sem stendur af gömlum vana í stofunni:-) 
Klára að mála baðhúsið fína sem Lóa, Pétur og Co. skelltu upp í sumar:-) 
Setja upp snaga eins og vindurinn:-)
Og auðvitað kalka eitthvað....;-)

En nú er það kvöldmaturinn og það er ekkert minna en "Miss Heras Kesedillas" sem skal hristast fram úr erminni:-) 

Kærleikskremja,
Frú Púkó



22 July 2012

Góðan & blessaðan daginn:-)

Það er ekki laust við það að tíminn fljúgi áfram þegar það er gaman:-) 
Ég er búin að vera á leiðinni að setja inn einhverja visku hér en það hefur ekki tekist...fyrr en nú:-) 

Erum búin eiga alveg yndislegan sunnudag hér í kotinu. Bara dásamlegt að fá svona "ofsa"veður og neyðast til þess að vera inni;-) 

Á dagskránni er auðvitað að setja í nokkrar vélar en svo stefni ég í bílskúrinn til að dúlla mér við að pússa og mála mublur & Things :-)  En áður en ég get deilt því með ykkur sem þar fer fram að þá ætla ég að skella hér inn nokkrum myndum af "SunnudagsSteikinni";-) 

Við erum að selja alveg dásamlegar vörur frá "Philip Vahé" í Púkó & Smart og erum orðin húkt:-)

Það sem við notuðum í dag voru eftirfarandi tegundir:
Salt m/parmesan & basil
Tómat & Artichoke pestó
Fíkju & Basilico pestó


SunnudagsSalat:
Slatti af salatblöndu & Spínati
Avocadó
Rauðlaukur
Hráskinka
Fíkju og Basilico Pesto



Sumardrykkur:
Slatti af frosnum ávöxtum - notaði Exotíska blöndu í dag:) 
Slatti Grísk jógúrt
Slatti Appelsínusafi
Dass af vanilludropum



Ostabrauð í ofni:
Snittubrauð skorið í tvennt
Ólívuolía
Salt m/parmesan & basil
Mosarellaostur í rúllu

Skárum niður tómata og rauða papríku og nokkur Basilikulauf í tilefni dagsins:-) 

Allt sett á diski og Voila:-) 


Nú er Grænmetisbaka að hitna í ofninum og þegar henni hefur verið skolað niður með íslensku vatni úr krananum......bílskúrinn, frúin og draslið:-) 

Knús út í tilveruna
Frú Púkó:-) 


06 June 2012

Jæja... þá er nú aldeilis allt að verða vitlaust á heimilinu:) Við hjónakornin erum í óða önn að undirbúa og skapa okkar "annað" heimili og nú dugar ekkert minna er Laugavegur in the center of Reykjavík:) 
Við erum búin að vera að kalka og panilleggja og kalka aðeins meira...á milli þess sem við vesenumst i því að klóra okkur í gegnum innflutningsferli á öllum þeim aragrúa af fallegu vörum sem við munum bjóða upp á:) Þetta er ekkert svoooo leiðinlegt verð ég að segja...frúin hreinlega í eSSSinu sínu þessa daganna:) Og nú fer ég að verða duglegri að demba inn efni....en allt hefur þetta sinn gang og næstu daga fer allur krafturinn í blessaða búðina svo ég geti hnýtt á mig svuntuna og hafist handa:-D

Yfir og út elsku veröld...
Frú Púkó:)

19 March 2012

Eitthvað löt við skriftir þessi dama:)

Já ég hef bara ekki gefið mér tíma til að kvitta hér undanfarið enda alveg upp fyrir haus i hugmyndavinnu og skemmtilegheitum:) Stefnir allt í það að stóri draumurinn rætist eftir langa bið og það mun ekkert fara á milli mála hér þegar það gerist:) Hér er allavega byrjunin

Fylgist með:) 

Knús, 
Frú Púkó

25 January 2012

Snjór og meiri snjór....ekki alveg fyrir kisur:-)

Herre gúd hvað veðrið er fallegt úti!
fórum í göngutúr í Ellidalnum í dag turtidúfurnar og náttúran var guðdómlega fögur:) 
En það eru víst ekki allir sammála mér í því að snjórinn sé skemmtilegur því að kötturinn okkar hún Milla er algerlega að fara yfir um í allri inniverunni! Ef hún gæti andvarpað hressilega að þá myndi hún gera það í hvert skipti sem útihurðin opnast. Hún hangir við hurðir og glugga og bíður eftir því að veðrið breytist og  það verði ketti út sigandi:) Langar að deila með ykkur smá myndaseríu af þessari elsku....og vara við því að krúttstuðullinn er mjög hár á sumum þeirra:-D

Búin að finna fínan stað til að kúra á þangað til veðrinu slotar:) 

Og þetta er það sem hana dreymir í dag....þegar hún sem kettlingur lék sér innan um blómin í garðinum og hlustaði á fuglasöngin einbeitt og áhugasöm:-) 




Veiðihugur í minni....og blessuð músin veit ekki hvað bíður sín:) 

Með mikla útþrá..greinilega ein af Fjölskyldunni:) 

Hver segir svo að Kettir setji sig ekki inn í Þjóðarmálin:-D

Jesúss minn....þvílíkt krútt:-) 

Over & out í bili!


22 January 2012

Sunnudagur í sæluvímu:)

 Úti er frost og snjókoma og ekki hægt að hafa það betra í lífinu:) Í "joggaranum" með hele familien heima.  Leikur í gangi í imbanum þar sem "Strákarnir okkar" eru 6 mörkum yfir. Bóndinn með te í sófanum að horfa og frúin með pensilinn á lofti! Hér er fyrsti hlutur endurfæddur:)

Fann þessa elsku í "Góða" og greiddi fyrir hann heilar 500 krónur!


Og hér er hann nýmálaður og fínn:) Grunnaði fyrst, notaði svo alveg matta málningu frá Jötun "Lady - Pure Color"sem heitir Lys Antik. Pússaði svo yfir með fínum sanpappír til að fá "notaða" útlitið. Nota hann undir blöð, bækur og kertastjaka þangað til það koma gestir...þá fær hann að þjóna sem stóll:-) 

Svo er hér enn einn dýrgripurinn:) Fann þetta dýrðlega saumavélaborð líka í "Góða" og er alltaf að klóra mér í hausnum með það hvort ég eigi að lýsa efra stykkið eður ei!! 

Hvað segið þú? 

Þangað til, pensilinn aftur á loft og nú er það Ikea skápurinn:) 



21 January 2012

Dagurinn í dag...

..Var nýttur í tiltekt úti og inni! Bílskúrinn tekin í gegn þannig að nú er hægt að ganga um hann og frúin getur farið að taka upp pensla og sandpappír eftir allt of langt frí!

Það bíða þó nokkur verkefni og hér koma nokkrar myndir "before" - Þetta er allt úr "Góða hirðinum" nema Ikea skápurinn:)

Stefnan tekin á það að klára þetta á næstu vikum og koma þessu svo fyrir með tilheyrandi dúlleríi!
Ikea skápur 

rúmgrind

Blómapottar

Hliðarborð

Baststóll - búið að grunna

Hilla

Skápur

ákafega fallegur stóll

Leyfi ykkur a fylgjast með endurfæðingunni:)

Love, Peace & Hairgrease:)