25 January 2012

Snjór og meiri snjór....ekki alveg fyrir kisur:-)

Herre gúd hvað veðrið er fallegt úti!
fórum í göngutúr í Ellidalnum í dag turtidúfurnar og náttúran var guðdómlega fögur:) 
En það eru víst ekki allir sammála mér í því að snjórinn sé skemmtilegur því að kötturinn okkar hún Milla er algerlega að fara yfir um í allri inniverunni! Ef hún gæti andvarpað hressilega að þá myndi hún gera það í hvert skipti sem útihurðin opnast. Hún hangir við hurðir og glugga og bíður eftir því að veðrið breytist og  það verði ketti út sigandi:) Langar að deila með ykkur smá myndaseríu af þessari elsku....og vara við því að krúttstuðullinn er mjög hár á sumum þeirra:-D

Búin að finna fínan stað til að kúra á þangað til veðrinu slotar:) 

Og þetta er það sem hana dreymir í dag....þegar hún sem kettlingur lék sér innan um blómin í garðinum og hlustaði á fuglasöngin einbeitt og áhugasöm:-) 




Veiðihugur í minni....og blessuð músin veit ekki hvað bíður sín:) 

Með mikla útþrá..greinilega ein af Fjölskyldunni:) 

Hver segir svo að Kettir setji sig ekki inn í Þjóðarmálin:-D

Jesúss minn....þvílíkt krútt:-) 

Over & out í bili!


No comments:

Post a Comment