Fann þessa elsku í "Góða" og greiddi fyrir hann heilar 500 krónur!
Og hér er hann nýmálaður og fínn:) Grunnaði fyrst, notaði svo alveg matta málningu frá Jötun "Lady - Pure Color"sem heitir Lys Antik. Pússaði svo yfir með fínum sanpappír til að fá "notaða" útlitið. Nota hann undir blöð, bækur og kertastjaka þangað til það koma gestir...þá fær hann að þjóna sem stóll:-)
Svo er hér enn einn dýrgripurinn:) Fann þetta dýrðlega saumavélaborð líka í "Góða" og er alltaf að klóra mér í hausnum með það hvort ég eigi að lýsa efra stykkið eður ei!!
Hvað segið þú?
Þangað til, pensilinn aftur á loft og nú er það Ikea skápurinn:)




No comments:
Post a Comment