Þetta þarf ekki að vera mikið flókið þetta líf:-)
Nú erum við komin í Sæluna okkar í nokkra daga og eina stellingin sem kemur til greina er sú er nefnist "Hvíldarstelling gamla mannsins"- þær sem kenndar eru við trúboða og aðra dýrðlínga munu týnast inn hver af annari eftir því sem dagarnir líða;-)
Doppóttu fánarnir fínu eru komnir upp í garðinum og ekkert agalega súrt að sitja á nýja pallinum og fá sér bita & njóta:-D
En það er auðvitað ekki hægt að liggja endalaust á bakinu í sólinni án þess að finna upp á einhverju að gera þannig að nú er frúin búin að hripa niður verkefnin og eru þau eftirfarandi:
Hengja upp dýrindis vegglímiða sem ég keypti í hinni á ávallt yndislegu SIRKU á Akureyri:)
Mála gamla skápinn þeirra Steinunnar og Heru gömlu sem stendur af gömlum vana í stofunni:-)
Klára að mála baðhúsið fína sem Lóa, Pétur og Co. skelltu upp í sumar:-)
Setja upp snaga eins og vindurinn:-)
Og auðvitað kalka eitthvað....;-)
En nú er það kvöldmaturinn og það er ekkert minna en "Miss Heras Kesedillas" sem skal hristast fram úr erminni:-)
Kærleikskremja,
Frú Púkó

No comments:
Post a Comment