Jú það var komin tími á nokkra hluti og þá er lítið annað að gera en bretta upp ermarnar og setja heimilið á annan endan rétt á meðan;-)
Þar er ekki laust við það að bílskúrinn sé fullur af dúllerí sem þarfnast smá athyglu frá Frúnni! Og þar á meðal þessi gamli og algerlega dásamlegi sófabekkur sem ég fann á netinu. Ég er búin að klóra mér þónokkuð í hausnum yfir því hvaða litur á að fara á hann! Var að hugsa hvítur fyrst....en ákvað að vera flippskúnkur og skellti á hann fádæma fögrum lit sem heitir "Lys Aubergine"frá Jötun:-) Fyrst var pússað og síðan málað....ekkert svo flókið:-D
Pússað í myrkri;-)
Komin í "fyrirsætustörf" í Púkó & Smart ný málaður, strokin og fínn:-)
Svo fékk ég ógurlega þörf fyrir að mála þennan gamla grip líka og þá var auðvitað ekki eftir neinu að bíða;-) Ég var búin að pússa hann áður en búðin opnaði þannig að ég dreif bara í því að mála hann og fyrir valinu varð litur sem heitir "Vanilje" og er frá Jötun. Og útkoman er sko ekki af verri endanum að eigin mati að minnsta kosti:-)
Alveg ótrúlegt hvað nokkur handtök og smá málning geta gert:-)
Yfir og út í bili....og vonandi ekki eins lengi og síðast;-)
Love, peace & hairgrease:-)


Glæsilegt mjög :)
ReplyDeleteRosa flott!
ReplyDelete