Aaahhhh elska fólk sem nennir að elda ofan í mig og ekki versnar það þegar maður fær nýjan öllara með hverjum rétti:-D Okkur hjónakornunum var boðið í dýrindis Bjóra&Osta boð á föstudaginn og ég held að leyfi bara myndunum að tala sínu máli....farin að slefa svo mikið af því að setja þetta saman að ég hræði bara tölvuhróið mitt sem er með eindæmum rakafælið:)
Voila e buon appetito:-D
Kirsuberjabjór í fordrykk og svo sameinast yfir pottunum í eldhúsinu:-)
Heimalagaður RICOTTA:-)
"Pasta fátæka mannsins" er eitthvaðsem ég gæti auðveldlega borðað í öll mál:) Og þessi ostabakki frá Maestro Eirný hjá BÚRINU framkallaði miklar stunur og stuð:-) Svo í blálokin kom dásemdar Frönsk súkkulaðikaka sem húsbóndin galdraði fram og með með honum dásemdar kaffibjór....og frúin sat lömuð af unaði og gleymdi að mynda mómentið...á það bara í staðin ein með sjálfri mér;-)
Á dagskrá dagsins er að taka hjónaherbergið í smá treat...færa fötin af gólfinu og inn í skápa, skipta á rúmi, ryksuga og þurrka af og byrja svo smá æfing fyrir Frostrósirnar sem í vændum eru:-)
Eigið dásamlegan sunnudag elskurnar:-)
Knús af kantinum
Frú Púkó



No comments:
Post a Comment