27 December 2012

Kalkaður heilagur Georg & Gleði

Gleðileg jól elska og ég vona að jólin hafi verið dýrðleg & að nýárið eigi eftir að "rock your world":-) 


Þessi frú er búin að hafa það algerlega dásamlegt í hreiðrinum með ungum og elskhuga og til að toppa það að þá var allri familíunni skellt í "matching pyjamas" og nú svífum við á milli vistarvera í dásamlega skrautlegum röndóttum & sérmerktum náttfötum:) Og ekki annað hægt en brosa þegar maður rekst á fjölskyldumeðlim á leið úr eldhúsinu með laufabrauðsmylsnu í hárinu og troðfullan munn af Sörum:-) Við erum það sem flokkast undir "totally adorable" þessa daganna:-) 



Og að öðru:-)  Nú ætla ég loksins að láta verða af því sem nokkrar af vinkonum mínum eru búnar að biðja um undanfarir og það er að birta mynd af mínum ástkæru & endurfæddu Georg Jensen óróum;-) 
Eg er nefnilega, eins og svo margir aðrir, stoltur eigandi jólaóranna hans Georgs "frænda"sem hann "gerði" á árunum frá 1999 - 2004! Fékk þá alltaf í jólagjöf frá minni elskulegu fyrrverandi tengdó og fannst ég fyrst vera orðin fullorðin þegar ég eignaðist þann fyrsta;-) 
Ég var með þessar elskur hangandi í eldhúsgardínunni eins og lög gera ráð fyrir í nokkur ár....þangað til einn daginn að ég gat bara ekki meir....er bara einhvern ekki "the golden girl" þegar kemur að jólunum:-) Ár eftir ár tók ég þá samt upp og velti þeim á milli handanna áður en ég pakkaði þeim aftur - reyndi meira að segja að lána þá en ekkert dugði til, ekkert gerðist....þangað til um síðustu jól;-) 
Sem fyrr, var ég búin að taka þessar elskur upp úr fínu rauðu kössunum sínum og velkjast með þá á milli handanna, skimandi í kringum mig eftir hugsanlegum stað  - fyrstu jólin í nýja draumahúsinu og ekkert annað í boði en að þeir fengju að vera með í "partýinu" - en eitthvað lét staðurinn á sér standa!  Ég var um það bil að fara að pakka þeim aftur niður þegar mér verður litið á borstofuborðið! Þar standa ný-kalkaðir dýrgripir í haugum (frúin búin að vera með kalkæði síðan sumarið 2010 og á bara eftir að kalka kallinn...) og við hliðina á þeim stendur opin fata með kalklit sem ber hit fagra nafn "Calche" og er eitt afbrigðið af hinum margrómaða hvíta lit....og þar með voru örlög þeirra ráðin! Ekkert annað í stöðunni en láta vaða....þannig að ég var ekkert að tvínóna neitt við þetta meir...sá órói sem í hendi var bar ártalið 2001 og fékk hann bara að vaða beinustu leið ofan í fötuna og dúsa þar í augnablik - síðan var honum umsvifalaust kippt upp úr og hann hengdur til þerris í ljósakrónunni...þá gat ég loks farið að  að sofa:-) Morgunin eftir stökk ég spennt fram úr (gerist mjööög sjaldan) og skottaðist beinustu leið inn í stofu til að líta á Georg gamla og viti menn....þarna hékk þessi líka fagra, matta & hvíta gersemi og beið þess eins að fá nýjan borða til að geta hafið sig til flugs yfir í eldhúsgluggann...og þar hangir hann núna þessi dásemd með bræðrum sínum 1999, 2000, 2002, 2003 & 2004:-D


....og ef þeir fara að kvarta og vilja fara aftur í gamla "goldfingerinn" að þá skelli ég þeim bara í uppþvottavélina og málið er steindautt;-D


Læt svo fylgja hér nokkrar glefsur frá Jóladúlleríi heimilisins 2012:-) 

Jólaknús á línuna & gleði í hjarta:-D
Frú Púkó

























5 comments:

  1. Yndislega fallegt hjá frúnni eins og við er að búast! Er einmitt búin að bíða spennt eftir að sjá með eigin augum endurfæðingu Georgs, eftir að þú sagðir mér frá þessu :) Brilliant!

    Jóla*knús

    ReplyDelete
  2. Þvílíka tæra snilldin Hera Björk! Það eru líka alveg örugglega til nóg af gylltum Georgum í landinu þó nokkrir útvaldir verði hvítir ;)Aldrei að vita nema ég kalki þennan eina sem ég erfði...

    Með kærri kveðju!

    ReplyDelete
  3. ps. allt svo fallegt og notalegt þarna heima hjá ykkur!

    ReplyDelete
  4. þetta er nú meiri snilldin hjá þér frú mín góð. ég skoðaði póstinn og leit svo í kringum mig á gylltu Georgana í stofugluggunum.. hmm... á maður!! Þeir passa svo sem alveg við jólin mín sem bera enn dáldíð gylltann keim en eru þó að hvitna með hverju árinu og þetta er bara svooo fallegt hjá þér svona.
    Jólhveðjur á þig og allt þitt náttfatalið
    Stína

    ReplyDelete
  5. Snilldar hugmynd! Þeir eru svo sannarlega flottir svona hvítkalkaðir...á nokkra Gogga sjálf og segi eins og þú; er ekki alveg þessi gullna gella, þannig að þetta er spurning. Gaman að kíkja hér inn á þig :)
    Bestu kveðjur
    Margrét

    ReplyDelete