Góðan daginn Heimur og takk fyrir mig:-D
Það er svo dásamlegt að vakna eftir dásamlegt partý með dásamlegu fólki á dásamlegum stað og uppgötva að á þessum dýrðar degi eigi maður 1 árs Brúðkaupsafmæli:-D
"Pappír" er það heillin og okkur til heiðurs ætlum við að hafa "pappír" sem þema dagsins og gera honum góð skil. Stefnan er tekin á miðborg Reykjavíkur þar sem planið er að innbyrða Sushi "með svörtum pappír utanum" eins og sonurinn segir, fara svo í bókabúðaráp og skoða bækur og blöð úr pappír, kaupa eitthvað fallegt úr pappír fyrir heimilið og enda svo daginn á því að taka ögn til í pappírum heimilisins, borða eitthvað gott saman af pappadiskum, skrifa markmiðin 2013 á pappir og að endingu kúra&kela eitthvað fram undir miðnætti;-)
Ekki hægt að biðja um dásamlegri tilveru í dag:-)
Hér eru örfáar & ársgamlar glefsur úr HamingjuBúbblunni okkar þann 29.desember 2012 sl.
Þetta var okkar uppskrift af okkar degi:
1 stk Hlaðbæjarfjölskylda
1 stk. Galtóm Lauganeskirkja
1 par Amma&Afi,
1 par af dásemdar prestarhjónunum Jónu Hrönn & Bjarna,
1 stk. dýrðarkórinn Schola Cantorum "the original version"
1 stk. dýrindis organistinn Gunnar Gunnarson
1 stk. ValgeirMagnússon sem sá um að festa þetta allt á filmu
1 stk. jólatré
6 stk. kertaljós
1 stk vetrarhríð með tilheyrandi ófærð
Dass af ást og gleði & smakkað til for years to come:-)
Svo hentumst við til Gassa í nokkrar mínútur og
hann fangaði nokkur fögur augnablik þessi elska:)
Dúllurassarnir með Ömmu Dísu & Afa Tóta:-)
Aaahhhhh...þetta er náttúrulega bara dásamlegt þetta líf sem við lifum!
Over&Out...with a silly smile on her happy face:-)
Frú Púkó


Awwwww - yndislegar myndir og greinilega skemmtilegt brúðkaup!
ReplyDeleteInnilega til lukku með ástina og þakka ánægjuleg kynni á árinu sem er að líða undir lok!
Gleðilegt nýtt ár :)
Kongrats!
ReplyDelete