20 January 2012

Nú byrjar árið 2012 með látum

Það er búið að vera dásamlegt að jólast undanfarnar vikur og krúttstuðullinn á heimilinu hækkaði töluvert yfir hátíðarnar. En núna þarf víst að ganga frá öllu dúlleríinu í kassa og koma því á sinn stað.

Og strax er mig farið að klæja í puttana þannig að nú er bara að byrja að gera og græja og undirbúa sig undir vorverkin í garðinum:)

En áður en lengra er haldið eru hér nokkrar myndir frá liðnum jólum af því sem hér var föndrað:)

Hér er að fæðast Aðventukransinn 2011:) Álbakki (sem ég fann í bílskúrnum og er víst notaður til að byggja gifsveggi), kerti, 1234skrautpinnar, greinar & glimmer:) 

Aðventukransin tilbúin til notkunar og komin á sinn stað í stofunni:) 

Kertaskreyting samsett úr greni, greinum, könglum, stjörnum og glimmeri a la Fríða vinkona! Kerti frá "MyStuff" sem ég keypti í Sirku á Akureyri:) 

Útikrans í uppsiglingu!

Tilbúin með tilheyrandi eplum, könglum og greni:) 

Og þá eru það "Georg Jensen" óróarnir sem eru til á hverju heimili:) Ég á nokkra og hef ekki notað þá í nokkur ár og orðin leið á gullinu og rauða borðanum með ártalinu! Og þá fékk ég þessa snilldarhugmynd....því ekki að dýfa þeim í kalk og skipta um borða...Herre gud hvað þeir eru fallegir svona hvítir og mattir:) 

Vona að "Goggi Jensen" snúi sér heilan hring i gröfinni og nagi á sér handarneinið fyrir að hafa ekki fengið þessa hugmynd sjálfur;) 


Jólatré úr smádótinu sem alltaf er fyrir manni og vantaði bara samastað:) 

Við dúlluðum okkur við þetta mæðgurnar eitt kvöldið á aðventunni og vorum ánægðar með útkomuna - þetta verður gert aftur að ári:) 

Yfir og út í bili:) 

1 comment:

  1. Þegar ég flyt að heiman vil ég fá þig til að dekórera hjá mér, love your style!

    ReplyDelete